Takk fyrir að "hlusta"
Bloggar | 16.12.2007 | 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ef satt er að Árni á ekkert í og starfar ekki í fyrirtækjunum sem hann nefnir í yfirlýsingu sinni þá væri nú gaman að vita hvaðan háttvirtir þingmenn hafa fengið sínar upplýsingar. Best væri fyrir þá að hafa sönnun á ummælum sínum á prenti áður en farið er með fullyrðingar í pontu. Oft er svona haldið fram í hita leiks og er það ekki málefnalegt. Einhver sagði að á alþingi væri margur misvitur maðurinn. Já, stundum er betra að þegja og vera talinn misvitur heldur en að opna á sér munninn og taka af því allan vafa.
Árni krefst leiðréttingar á ummælum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 7.12.2007 | 11:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggar | 6.12.2007 | 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hálka og hreindýr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.12.2007 | 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hef tekið eftir að fresta hefur nokkrum ferðum síðustu daga vegna veðurs og ef ég man rétt ferðar í slipp. Krafa Vestmannaeyinga um bættar samgöngur á svo sannarlega rétt á sér en spurningin er hvernig er hægt að bæta þær. Ég man þá tíð þegar ég vann í Eyjum og tók Herjólf gamla fram og til baka. Ekki mátti vera mikil alda til þess að farþegar sem ekki voru vanir sjó skiftu litum og sjóveiki gerði vart við sig. Þvílíkan korktappa hef ég aldrei sest í fyrr né síðar. Því miður hef ég ekki farið í nýja Herjólf en ég vona að hann sé betri sjóskip en sá gamli. Snúum okkur aftur að samgöngum. Lengi hefur þjóðþekktur maður verið að pota þeirri hugmynd fram að gera göng á milli lands og Eyja. Verðið á slíku mannvirki er stjarnfræðilegt og með það í huga að enn er einhver eld- og skjálftavikni þarna tæki ég ekki sénsinn á að aka þar í gegn. Bakkafjara ef ég man rétt er líka á teikniborðinu og hallast einhverjir frekar að því. Hér er hugmynd. Af hverju ekki að nota auranna sem ættu að fara í göng eða Bakkafjöru og láta smíða 2 kafbáta sem yrðu sér hannaðir til fólks, farm og bílaflutninga? Kafbátar í dag fara frekar hratt yfir, eru lítið háðir veðrum og vindum nema þegar farið er úr og komið í höfn, ganga yfirleitt fyrir rafmagni ( rafhlöður/kjarnorka, væri vistvænna að stinga í samband á milli ferða til að hlaða) og hægt væri að vera með stóra glugga til að skoða lífið í sjónum. Þessir bátar væru ekki að fara á mikið dýpi svo eitthvað ætti að sjást. Hér er slóði sem sýnir að svipaðar pælingar eru á borðinu þó ekki beint sé um flutninga á fólki eða bílum að ræða. http://www.ckb-rubin.ru/eng/project/otherp/uwaters/index.htm Þessi Kafbátur gengur allt að 16 mílur og tekur 15.000 tonn. Ekki veit ég hvað Herjólfur tekur en þetta hljómar slatti. Að vísu verð ég að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um hvernig eða hvort öldur hafa áhrif á kafbáta. Hvort þarf að fara niður fyrir einhverja ákveðna dýpt eða hvað til að losna við ruggið. Hugmyndin er samt góð.
Fyrri ferð Herjólfs frestað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 4.12.2007 | 10:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Pabbar í pössun í Hagkaupum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 29.11.2007 | 08:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Iðnaðarráðherra vígði vetnisstöð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 28.11.2007 | 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Klukkustund að útkalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.11.2007 | 08:59 (breytt kl. 09:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stundum er málum þannig háttað að ekki er hægt að halda upp á afmælin á réttum tíma. Sonur minn á afmæli 31. júlí en vegna þess að hann var hjá móður sinni í sumar og ég búinn að sitja námskeið síðustu 4 vikur hefur ekki verið tími til að gera þetta fyrr en í dag. Í gærkvöldi var svo hafist handa við bakstur. Dóttirin, sem er 3 árum yngri, tók virkan þátt í bakstrinum ásamt stráknum. Þar sem Betty Crocker klikkar ekki og ég er ekki mikill bakari var sett í djöflatertu. Eftir að hafa talið fingur barnanna og fullvissað mig um að enginn þeirra hafi endað í þeytaranum voru formin sett í ofninn. Það skal viðurkennast mikil rýrnun hafði orðið á deiginu eftir börnin og því deigið í formunum minna en gert var ráð fyrir. Baksturinn átti svo að taka 22 til 25 min. Þessar mínútur átti að nota til að koma krílunum í náttföt, bursta tennur o.s.f. Eins og oft vill verða þegar mikill spenningur er kominn í krakka þá var þetta bara ekki að ganga upp og 50 min síðar mundi ég skyndilega eftir Betty greyinu í ofninum. Betty var ekki brunnin sem betur fer en hafði skroppið saman og rýrnað svo lítið, satt að segja var þetta einskonar múmíu Betty, þurr og stökk. Sem betur fer var kúturinn minn sofnaður og ég, sem af biturri reynslu, passa mig á að kaupa 2 sett af öllu þegar bakstur er annars vegar, setti í aðra Betty og að þessu sinni stillti ég klukkuna. Sonurinn verður því með djöflatertu sem lítur út eins og Jango Fett úr Star Wars og Betty Crocker kex sem er sér bakað fyrir hann. Kosturinn við börnin er, að þau setja ekki fyrir sig útlit og form ef súkkulaði er annars vegar.
kv
Lone Wolf
Bloggar | 15.9.2007 | 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Einhvern tímann verður allt fyrst" var það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég stofnaði þessa blogg-síðu. Og í framhaldi af því datt ég í að velta mér upp úr svona frösum og hversu oft fólk notar þá til að réttlæta gjörðir sínar og stjórna þeim. Ekki get ég fyrir nokkuð séð annan tilgang með " oft er flagð undir fögru skinni" nema til að tortryggja fagurt fólk á meðan "ekki er allt sem sýnist" er kannski hugsað til að ofögrum sé gefin meiri séns. Ég meira að segja komst að því, eftir að hafa hugsað til baka um 10 ár eða svo, að sum svona spakmæli passa bara oft ekki saman. T.d. "þögn er ekki sama og samþykki" "ef sá vægir sem vitið hefur meira". Það er til fólk sem trúir því að "góðir hlutir gerist hægt" og bíður í ofvæni eftir að eitthvað gerist. Er þá ekki betra "að láta slag standa" og "henda sér í djúpu laugina" og gera eitthvað í málunum? Mörgum íþróttamanninum finnst kannski ekki "að fall sé farar heill" frekar en "að hengja bakara fyrir smið" sé til þess fallið að fjölga í bakarastéttinni. Mér hefur til dæmis alltaf þótt frekar ósæmilegt þegar að kvæntur maður er spurður að því hvort hann sé enn "að hjakka í sama farinu", eða hvað er málið með "að haltur leiði blindan". Ef ég væri blindur þá vildi frekar hafa haltan mér við hlið en engan. Einhvern tíman var gert mikið grín að því að kjörorð þeirra manna sem "spila með hinu liðinu" væri "látum hart mæta hörðu" og þá má svo sem segja að þeir sem eru í "rétta liðinu" "leggi höfuðið í bleyti" Ég held að þetta sé komið í dag og áður en allt "fer úr böndunum" ætla ég "að byrgja þennan brunn áður en það er of seint";)
Kv.
Lone Wolf
Bloggar | 14.9.2007 | 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)